Bráðabirgðaleyfi til að starfa sem merkjalýsandi
Búið er að loka fyrir umsóknir skv. bráðabirgðaákvæði reglugerðar um merki.
Merkjalýsendur mæla merki fasteigna, gera merkjalýsingar og skrá merki í fasteignaskrá.
Merkjalýsendur verða að hafa sótt námskeið og staðist próf til að fá úthlutað leyfi til að starfa sem merkjalýsandi.
Námskeið og leyfisveiting er ekki hafin og því er hægt að sækja um bráðabirgðaleyfi sem merkjalýsandi hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Sækja þarf um bráðabirgðaleyfi fyrir 15. mars 2024.
Bráðabirgðaleyfi gildir þar til leyfishafi hefur sótt námskeið og fengið útgefið leyfi, en þó ekki lengur en til 1. júní 2025.
Skilyrði
Þú þarft að uppfylla annað eða bæði skilyrði um starfsreynslu:
Þú hefur starfað hjá sveitarfélagi eða öðrum opinberum aðilum við stofnun og skráningu fasteigna
Þú hefur starfað við að útbúa landamerkjalýsingar og önnur skjöl til afmörkunar fasteigna
Sækja um
Rökstuðningur og fylgigögn
Með umsókninni þarf að fylgja rökstuðningur fyrir leyfisveitingunni, þar sem þú tekur til dæmis fram starfsreynslu í afmörkun fasteigna eða gerð landamerkjalýsinga
Þú getur sent fylgiskjöl með umsókninni sem sýna fram á starfsreynslu
Bráðabirgðaleyfið er gjaldfrjálst en greiða þarf 2.500 kr. fyrir búsforræðisvottorð í umsóknarferlinu.
Umsókn samþykkt
Þú færð tölvupóst þegar umsókn hefur samþykkt.
Umsókn synjað
Ef þú uppfyllir ekki skilyrðin eða einhver gögn vantar eða krefjast nánari útskýringar verður haft samband við þig með tölvupósti.
Þjónustuaðili
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun