Mótorhjólapróf
Á þessari síðu
Mótorhjólanám skiptist í :
bóklegt nám í stað- eða fjarnámi
verklegt nám með ökukennara
Flokkar mótorhjólaréttinda
Flokkur | Aldur | Fjöldi bóklegra tíma | Fjöldi verklegra tíma | Lýsing |
---|---|---|---|---|
AM | 15 ára | 12 kennslustundir | Lágmark 8 kennslustundir | Létt bifhjól, skellinaðra eða vespa með slagrými að hámarki 50 sm3 og ekki hannað fyrir hraðari akstur en 45 km. Ýmist á tveimur eða þremur hjólum. |
A1 | 17 ára | 12 kennslustundir | Lágmark 5 kennslustundir | Bifhjól á tveimur hjólum með eða án hliðarvagns, með slagrými sem er ekki yfir 125 cc og afl sem er ekki yfir 11 kW, á þremur hjólum með afl sem er ekki yfir 15 kW, bifhjól í AM-flokki. |
A2 | 19 ára | 24 kennslustundir | Lágmark 11 kennslustundir | Bifhjól á tveimur hjólum, með eða án hliðarvagns, afl að hámarki 35kW, afl/þyngdarhlutfall að hámarki 0,2 kW/kg. Bifhjól sem hefur ekki verið breytt frá því að hafa áður meira en tvöfalt afl. Veitir einnig AM og A1 réttindi. |
A | 24 ára. Nema 21 árs ef A2 réttindi lokin. | 24 kennslustundir | Lágmark 11 kennslustundir | Bifhjól á tveimur hjólum með eða án hliðarvagns. Bifhjól á þremur hjólum með afl meira en 15kW. Veitir einnig AM, A1 og A2 réttindi. |
Bóklega tíma úr fyrra ökunámi er hægt að fá metna.
Ferli mótorhjólanáms
Kostnaður
Kostnaður fer eftir gjaldskrá ökuskóla. Einnig þarf að greiða próftökugjöld hjá Frumherja og kostnað vegna nýs ökuskírteinis hjá sýslumanni.
Þjónustuaðili
SamgöngustofaTengd stofnun
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu