Fara beint í efnið

Blindflugsáritun (IR)

Blindflugsáritun

Þegar ekki eru sjónflugsskilyrði er flogið samkvæmt blindflugsreglum (IFR), en til þess þarf flugmaðurinn að hafa blindflugsáritun (IR) í skírteini sínu. Blindflugstími er sá tími sem floginn er eingöngu eftir mælitækjum án viðmiðunar utan stjórnklefans. 

Til að öðlast blindflugsáritun (IR) þarf að ljúka bóklegu og verklegu námi hjá samþykktum þjálfunarfyrirtækjum (flugskólum) sem hafa heimild til þjálfunar nemenda í blindflugi.

Bóklegt blindflugsnám

Er yfirleitt tekið samhliða bóklegu atvinnuflugmannsnámi og er námsefnið það sama. Útskrift úr bóklegum atvinnuflugmannsprófum (ATPL) gildir í 36 mánuði til að ljúka verklegu atvinnuflugmannsnámi og færniprófi til útgáfu atvinnuflugmannsskírteinis með blindflugsáritun, (CPL / IR), talið frá og með þeim degi sem próftaki lýkur öllum bóklegum prófum.

Einnig er hægt að fara á sérstök bókleg blindflugsnámskeið,til dæmis fyrir einkaflugmenn, ef þau eru í boði hjá viðkomandi flugskóla. Að loknu slíku námskeiði þarf nemandinn að standast bókleg blindflugspróf (IR) hjá Samgöngustofu í 7 próffögum:

  • 010 - Air law (LAW)

  • 022 - Instrumentation (INST)

  • 033 - Flight planning and monitoring (FPM)

  • 040 - Human performance (HUM)

  • 050 - Meteorology (MET)

  • 062 - Radio navigation (R NAV)

  • 090 - Communications (COM)

Til að fá blindflugsáritun í skírteini þarf að standast bókleg blindflugspróf (IR) hjá Samgöngustofu (hafi viðkomandi ekki lokið bóklegum atvinnuflugmannsprófum innan 36 mánaða) og/eða verklegu færniprófi með prófdómara.

Performance Based Navigation

Nánari upplýsingarefni fyrir flugmenn varðandi innleiðingu á PBN-kröfu,

Blindflugsáritun

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa