Fara beint í efnið

Dagdvalir og dagþjálfun eldra fólks

Mikilvægur liður í því að geta búið áfram heima er að halda sér virkum. Víðast hvar eru reknar almennar dagþjálfanir eða dagdvalir. Þar fer fram fjölbreytt starfsemi en sótt er um til viðkomandi rekstraraðila eða heimilis sem býður úrræðið.

Eldra fólk sem býr heima en þarf reglulega umönnun getur sótt um að komast í dagdvöl eða dagþjálfun í einn eða fleiri daga vikunnar.

Almennar dagþjálfanir

Dagþjálfanir aldraðra er stuðningsúrræði við þá sem að staðaldri þurfa eftirlit og aðstoð til að geta búið áfram heima.

Í dagþjáfunum eldra fólks er meðal annars veitt:

  • Hjúkrunarþjónusta auk þjálfunar og læknisþjónustu

  • Tómstundaiðja

  • Félagslegur stuðningur

  • Fræðsla, ráðgjöf og aðstoð við athafnir daglegs lífs

Þeim sem býðst virkni í dagþjálfun er séð fyrir akstri að og frá heimili. Almennar dagþjálfanir/dagdvalir eru í öllum heilbrigðisumdæmum landsins. Þær eru oft reknar á sama stað og í samvinnu við þjónustumiðstöðvar sveitafélaganna. Hægt er að sækja þjónustuna daglega eða tiltekna daga vikunar. Greitt er hóflegt gjald fyrir hvern dvalardag.

Sérhæfðar dagþjálfanir

Einstaklingum með heilabilun stendur til boða að sækja virkniþjónustu í sérhæfðar dagþjálfanir þar sem leitast er við með fjölbreyttri virkni að hægja á framgangi sjúkdómsins.

Markmið sérhæfðra dagþjálfana eru að:

  • Viðhalda sjálfstæði einstaklingsins eins lengi og kostur er með því að styrkja líkamlega og vitsmunalega hæfni og stuðla þannig að því að hann geti búið sem lengst heima

  • Rjúfa félagslega einangrun og efla þátttöku í daglegum athöfnum

  • Létta undir með aðstandendum

  • Fylgjast með daglegu heilsufari

  • Efla sjálfstraust, draga úr vanlíðan og vanmáttarkennd

Lögð er áhersla á sveigjanleika í starfseminni og fjölbreytta virkni og afþreyingu. Sérhæfðar dagþjálfanir eru reknar um allt land þótt flestar séu á höfuðborgarsvæðinu.

Dagdvalir með sérhæfðri endurhæfingu

Í dagdvöl með sérhæfðri endurhæfingu felst dagþjálfun þar sem áhersla er lögð á líkamlega þjálfun og félagslega virkni.

Þjónustan er eingöngu fyrir eldra fólk þar sem endurhæfing er forsenda þess að viðkomandi geti áfram búið heima eða fyrir eldra fólk sem þarfnast endurhæfingar í kjölfar sjúkrahúslegu. Dagþjálfunin er 8-10 vikna úrræði 3-5 daga vikunnar og er enn sem komið er aðeins í boði á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu.

Tvær dagdvalir á höfuðborgarsvæðinu bjóða þessi úrræði eða Múlabær og Hrafnista Laugarási.

Seiglan þjónustumiðstöð yngri greindra

Í Lífsgæðasetrinu á St.Jó. í Hafnarfirði er starfrækt þjónustumiðstöð fyrir einstaklinga sem eru stutt gengnir með heilabilunarsjúkdóm og því á stigi vægrar vitrænnar skerðingar.

Lengi hefur vantað úrræði fyrir þennan hóp sem segja má að hafi beðið heima eftir að verða nógu veikir til að eiga rétt á þjónustu í sérhæfðri dagþjálfun. Boðið er upp á fjölda þjónustutilboða í hverjum mánuði sem byggist á hugrænni, líkamlegri og félagslegri þjálfun.

Markmið Seiglunar er að viðhalda færni en í boði er hugræn-, líkamleg- og félagsleg þjálfun. Í Seiglunni er starfað eftir hugmyndafræði iðjuþjálfunar.

Reglugerð um dagvist aldraða