Heilsuvera
Heilsuvera er vefur fyrir almenning um heilsu og áhrifaþætti hennar.
Heilsuvera er samstarfsverkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, embættis landlæknis og Landspítala. Markmið síðunnar er að koma á framfæri til almennings áreiðanlegri þekkingu um þroska, heilsu og áhrifaþætti heilbrigðis. Fara á vef Heilsuveru.
Á mínum síðum Heilsuveru er öruggt vefsvæði þar sem hægt er að eiga í samskiptum við starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar, panta tíma hjá heimilislækni, sækja um endurnýjun lyfseðla, skrá afstöðu til líffæragjafar og skoða eigin samskiptasögu við heilsugæslu.
Á Heilsuveru má finna gagnlegar leiðbeiningar um mínar síður.
Þjónustuaðili
Embætti landlæknisTengd stofnun
Heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu