Fara beint í efnið

Fá kennsluréttindi á vinnuvél

Umsókn um kennsluréttindi á vinnuvél

Sá sem annast verklega þjálfun á vinnustað verður að hafa kennsluréttindi á vinnuvél.

Skilyrði

Þú getur sótt um að verða leiðbeinandi ef þú:

  • ert með vinnuvélaréttindi í viðkomandi flokki

  • getur sýnt fram á að hafa lokið 1.000 vinnustundum á vél í viðkomandi réttindaflokki

Umsóknarferli

Þú sækir um með því að fylla út eyðublaðið og senda í tölvupósti til Vinnueftirlitsins.

Þú færð sent nýtt vinnuvélaskírteini þar sem þessi réttindi koma fram.

Ábyrgð leiðbeinenda

Sem leiðbeinandi berð þú ábyrgð á að þjálfunin fari fram í þannig umhverfi að ekki hljótist slysahætta af.

Til að auðvelda verklega þjálfun hefur Vinnueftirlitið gefið út gátlista fyrir verklega þjálfun á vinnuvél.

Umsókn um kennsluréttindi á vinnuvél

Þjónustuaðili

Vinnu­eft­ir­litið

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439