Fara beint í efnið

Starfsemistölur fyrir janúar-apríl 2024

9. maí 2024

Aukning í fjölda krabbameinslyfjagjafa.

Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri SAk - landscape
  • Fjöldi dvalardaga þessa fjóra mánuði var rúmlega 9.000 sem er heldur færra en í fyrra. Dvalir einstaklinga eru að styttast og meðalfjöldi dvala eru núna 4,5 dagar samanborið við 4,9 í fyrra.

  • Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru um 74% af heildarinnlögnum.

  • Ef horft er til rúmanýtingar deilda þá er lyflækningadeild með 92,5% nýtingu, skurðlækningadeild með tæplega 85% sem er ívíð minna en í fyrra og á það sama við um geðdeildina. Ástæðan er sú sama og að ofan að útskriftir eiga sér stað fyrr en áður og rúmanýting þannig betri.

  • Rúmlega 5.600 einstaklingar hafa fengið þjónustu á göngudeild og þar af 798 vegna krabbameinslyfjagjafar, samanborið við 696 lyfjagjafir á sama tíma í fyrra og er stöðug aukning í þeirri þjónustu.

  • Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku er fjöldi samskipta 6.059 samanborið við 5.925 á sama tíma í fyrra (sjá graf um komur á bráðamóttöku janúar til apríl ár hvert). Biðtími eftir því að hitta lækni á bráðamóttöku hefur aukist lítillega og er nú um 44 mínútur sem er aðeins fyrir utan viðmið okkar um 40 mínútna bið eftir lækni.

  • Fjöldi skurðaðgerða þessa fjóra mánuði ársins voru 912 sem er sambærilegt og í fyrra. Um 27,7% aðgerða voru bráðaaðgerðir og gerviliðaaðgerðir 140 á móti 135 gerviliðaaðgerðum í fyrra.

  • Fjöldi myndgreiningarannsókna (án brjóstamynda) var um 13.600 og gerir það að meðaltali um 112 rannsóknir á dag sem er sambærilegt og verið hefur. Lítillega hefur dregist saman í öðrum rannsóknum s.s. á rannsóknadeild og lífeðlisfræðideild.

  • Enn heldur áfram aukning í fæðingum miðað við í fyrra en í ár hafa fæðst 137 börn samanborið við 126 börn á sama tíma í fyrra.

  • Komur og innlagnir ósjúkratryggðra eru á pari við sama tímabil í fyrra.