Umferðaröryggi
Ýmsar leiðir eru til að afla sér þjálfunar og þekkingar á umferðarmálum.
Umferðaröryggi
- Öryggisútbúnaður í bílum á vef Félags íslenskra bifreiðaeigenda
- Öryggi á vef Samgöngustofu
- Notkun nagladekkja er bönnuð frá og með 15. apríl til og með 31. október nema þeirra sé þörf vegna akstursaðstæðna.
Ferðaupplýsingar á vef Vegagerðar
Vegasjá Vegagerðarinnar
Umferðarfræðsla
- Ökumenn geta rifjað upp umferðareglur og kannað þekkingu sína á heimasíðu Umferðarstofu.
Fræðsla fyrir ökumenn - Umferðarmerkin – merking og notkun
- Börn í bíl á vef Samgöngustofu
Umferðarlagabrot
Reiknaðu út sektir og viðurlög við hraðakstri og ölvunarakstri:
Sektarreiknir á vef Samgöngustofu
- Þeir sem gerast brotlegir í umferðinni eru dæmdir í sektir og safna refsipunktum í ökuferilsskrá sína.
- Refsipunktar eru 1 - 4 eftir eðli brots. Ef 12 punktar safnast á þremur árum eða skemmri tíma missir ökumaður ökuréttindi í þrjá mánuði.
- Byrjandi með bráðabirgðaskírteini hlýtur akstursbann eftir fjóra refsipunkta sem gildir þar til hann hefur sótt sérstakt námskeið og tekið ökupróf að nýju. Byrjendur eru sviptir ökuréttindum við 7 refsipunkta og þurfa að sækja námskeið og taka ökupróf þegar sviptingu lýkur.
- Við alvarlegum umferðarbrotum, svo sem ölvunar- og hraðakstri, er ökumaður auk sekta sviptur ökuréttindum.
- Við stórfelldan eða ítrekaðan ölvunarakstur, hraðakstur eða akstur án ökuréttinda má gera ökutæki upptækt.
Ökunám og -réttindi á island.is