Námsmenn með börn
Námsmenn fá dagvistun barna sinna niðurgreidda, hvort sem er hjá dagforeldrum eða á leikskólum.
Fæðingarorlof
- Við fæðingu barns eiga námsmenn rétt á fæðingarstyrk, það er greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.
- Hvort foreldri um sig á sjálfstæðan rétt á fæðingarstyrk í þrjá mánuði. Auk þess eiga foreldrar rétt á þremur mánuðum til viðbótar sem þeir geta ráðstafað sín á milli að vild.
- Skila þarf umsókn til Fæðingarorlofssjóðs í síðasta lagi þremur vikum fyrir áætlaðan fæðingardag barns.
Fæðingar- og foreldraorlof á Ísland.is
Fæðingarorlof og fæðingarstyrkur á vef félagsmálaráðuneytis
Barnabætur
- Barnabætur eru til þess ætlaðar að létta undir með barnafólki og jafna stöðu þess. Ákveðin upphæð er greidd til foreldra með hverju barni fram að 18 ára aldri.
Barnabætur á Ísland.is
Dagvistun barna
- Námsmenn eiga rétt á niðurgreiðslu daggæslu- og leikskólagjalda barna sinna. Skila þarf inn vottorði skóla um fullt nám. Nánari upplýsingar um gjaldskrár og niðurgreiðslur ásamt umsóknareyðublöðum fást á vefjum leikskóla og sveitarfélaga og hjá dagforeldrum.
- Námsmenn sem eiga lögheimili í einu sveitarfélagi en ætla að stunda nám í öðru geta fengið undanþágu og sótt um leikskólapláss og dvöl hjá dagforeldrum. Skila þarf inn vottorði skóla um fullt nám og staðfestingu heimasveitarfélags.
- Félagsstofnun stúdenta rekur nokkra leikskóla fyrir námsmenn við Háskóla Íslands. Þá geta foreldrar sem nema við Listaháskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Akureyri leitað til viðkomandi sveitarfélags eftir leikskólaplássi. Sveitarfélög reka leikskóla við þrjá háskóla á landsbyggðinni, Háskólann á Hólum, Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og Háskólann á Bifröst.
Dagvist á Ísland.is
Leikskólar á Ísland.is
Stofnanir á vef stjórnarráðsins
Leikskólar Félagsstofnunar stúdenta
Sveitarfélög á landinu
Vert að skoða
- Hverfið mitt, hverfavefir Reykjavíkurborgar
- Þjónusta á vef Reykjavíkurborgar
- Félags- og fjölskyldumál á vef stjórnarráðsins