Útivistartími barna og unglinga breytist
Frá og með 1. september breytist útivistartími barna og unglinga hér á landi. Börn, 12 ára og yngri, mega þá ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20 á kvöldin nema í fylgd með fullorðnum. Börn og unglingar á aldrinum 13 til 16 ára, mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22, nema þau séu heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldursmörkin miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag.