Fasteignamat 2014 á Ísland.is
Fasteignaeigendur geta skoðað tilkynningaseðil fasteignamats 2014 í pósthólfi sínu á Mínum síðum á Ísland.is. Til þess þurfa þeir rafræn skilríki eða Íslykil. Fasteignaeigendur geta einnig nálgast fasteignamatið á skra.is með því að slá inn heimilisfang. Tilkynning um fasteignamat 2014 verður almennt ekki send út í hefðbundnum bréfpósti, en hægt er að hafa samband við Þjóðskrá Íslands og óska eftir að fá tilkynningaseðilinn sendan í pósti.
Fréttatilkynning Þjóðskrár Íslands