Skjölin vís á Ísland.ís
Samstarf Tryggingastofnunar ríkisins og Þjóðskrár Íslands hefur nú skilað því að milljónir skala frá Tryggingastofnun eru nú aðgengileg í pósthólfinu á mínum síðum á Ísland.is. Um er að ræða greiðsluseðla, yfirlit o.fl., en álagningaseðlar fasteignagjalda frá öllum sveitarfélögum og tilkynningaseðlar um fasteignamat frá Þjóðskrá Íslands hafa verið þar aðgengileg í nokkur ár.
Engin skjöl eða skjalalistar eru þó geymd á Ísland.is, heldur er náð í réttar upplýsingar til stofnana/skjalaveitna í rauntíma.
Rétt er að geta þess að skjöl Tryggingastofnunar eru að sjálfsögðu áfram einnig aðgengileg á mínum síðum hjá Tryggingastofnun.
Unnið er að því að birta skjöl frá fleiri opinberum aðilum á Ísland.is, en öllum stofnunum stendur það til boða og geta þannig miðlað upplýsingum til viðskiptavina sinna á skjótvirkan og hagkvæman hátt. Auk þess sem viðskiptavinir geta ávallt nálgast upplýsingarnar hvaðan sem er og hvenær sem er.
Dæmi um skjalalista er hér fyrir neðan:
