Kvartanir og kærur
Kvartanir og kærur almennings vegna heilbrigðisþjónustu eru misjafnlega umfangsmiklar og alvarlegar, allt frá kvörtunum yfir vandræðum í samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk og yfir í alvarleg mál vegna mistaka.
Kvartanir og kærur
- Landlæknisembættið og nefnd um ágreiningsmál taka við kvörtunum og kærum vegna meðferðar á heilbrigðisstofnunum. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar fást á vef Landlæknisembættis.
- Ef kvarta á yfir þjónustu á heilbrigðisstofnun skal hafa samband við yfirstjórn viðkomandi stofnunar. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar fást á vef Landlæknisembættis.
- Ef mistök eða óhapp verður við meðferð eða aðgerð innan opinberrar heilbrigðisþjónustu getur sjúklingur leitað til Sjúkratrygginga Íslands eftir sjúklingatryggingabótum.
- Ef mistök eða óhapp verður á einkastofu læknis, tannlæknis eða annarra heilbrigðisstarfsmanna getur sjúklingur leitað bóta hjá tryggingafélagi heilbrigðisstarfsmannsins.
Kvartanir til landlæknis á vef embættis landlæknis
Sjúklingatrygging á vef Sjúkratrygginga
Eftirlit í heilbrigðisþjónustu á vef heilbrigðisráðuneytis