Fara beint í efnið

Eftirlit með öryggi vara og þjónustu

Öryggi vöru og þjónustu er aðalatriði fyrir neytendur. Nokkrir aðilar koma að öryggiseftirliti.

Öryggi matvæla

Matvælastofnun fer með yfirumsjón matvælaeftirlits. Þá eru rannsóknir á matvælum meðal annars gerðar hjá Matís ohf.

Heilbrigðisnefndir undir yfirumsjón Matvælastofnunar hafa opinbert eftirlit með framleiðslu og dreifingu matvæla, að svo miklu leyti sem það er ekki falið öðrum. Í umboði heilbrigðisnefnda starfa heilbrigðisfulltrúar hjá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga.

Aðrar vörur

Vörur sem seldar eru á Evrópska efnahagssvæðinu eiga að uppfylla kröfur sem settar eru í lögum um öryggi vörunnar. Framleiðendur, innflytjendur og aðrir seljendur vöru bera ábyrgð á að hún uppfylli öll skilyrði sem um hana gilda. Ef vörur uppfylla ekki skilyrði um öryggi ber að afturkalla þær og leggja bann við frekari sölu.

Hér á landi fer Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) með mál er varða almennt öryggi vöru og annast markaðseftirlit. Neytendastofa sinnir markaðsgæslu raffanga, leikfanga, leikvallatækja og persónuhlífa, auk almennrar neytendavöru sem ekki er á ábyrgð annarra. Það er einnig hlutverk HMS að annast heildarskipulag og samhæfingu opinberrar markaðsgæslu.

Neytendastofa hefur eftirlit með að vara á markaði uppfylli kröfur og tekur við ábendingum frá neytendum og öðrum aðilum. 

Öryggi í umhverfi

Umhverfisstofnun fer, í samstarfi við heilbrigðiseftirlit/-fulltrúa á landinu öllu, með mál er varða heilsusamlegt umhverfi, aðbúnað og öryggi innanhúss, hjá stofnunum og fyrirtækjum sem almenningur sækir þjónustu til. Umhverfisstofnun hefur einnig eftirlit með öryggi leiksvæða og sundstaða.

Neytendastofa hefur eftirlit með því að leikvallatæki sem seld eru eða framleidd hér á landi uppfylli kröfur um öryggi. Hún fylgist einnig með öryggismálum á leiksvæðum barna og á sundstöðum.

Slysavarnir

Embætti landlæknis er faglegur ráðgjafi stjórnvalda um slysavarnir. Starfsemi embættis landlæknis á sviði slysavarna snýr að fræðslu, ráðgjöf, rannsóknum og vinnu við forvarnaverkefni. Markmiðið er að draga úr heilsutjóni og dauðsföllum af völdum slysa.

Vert að skoða

Lög og reglugerðir