Um undirskriftalista á grundvelli reglugerða
Undirskriftalisti vegna almennra atkvæðagreiðslna samkvæmt sveitarstjórnarlögum
- Ábyrgðarmaður/menn tilkynnir sveitarstjórn um fyrirhugaða undirskriftasöfnun.
- Sveitarstjórn á innan 4 vikna að meta hvort hægt sé að fara í almenna atkvæðagreiðslu og láta ábyrgðarmann/menn vita án tafar. Ef sveitarstjórn hafnar má kæra til dómsmálaráðuneytis.
- Sveitarstjórn leiðbeinir ábyrgðarmanni/mönnum um orðalag tilkynningar vegna undirskriftasöfnunar og aðstoðar á annan hátt.
- Undirskriftasöfnun má hefja á þeim degi sem sveitarstjórn heimilar, þó eigi síðar en innan 2 vikna.
- Sveitarstjórn auglýsir undirskriftasöfnun opinberlega, ákveður upphafsdag og lokadag kosninga og tilkynnir Þjóðskrá Íslands um undirskriftasöfnun.
- Ábyrgðarmaður sækir um að virkja undirskriftalista á Ísland.is
- Þjóðskrá Íslands þarf allt að 5 virka daga til að útbúa kjörskrá eða annað þýði úr þjóðskrá og opnar lista.
- Listinn getur bæði verið rafrænn og á pappír.
- Ábyrgðarmaður afhendir Þjóðskrá Íslands pappírsundirskriftir í frumriti og á rafrænu formi (excel – csv) Frumritið skal vera á númeruðum blaðsíðum 1, 2, osfrv. Fyrsta nafn á frumriti sama og fyrsta nafn á rafrænu formi.
- Þjóðskrá Íslands afhendir ábyrgðarmanni niðurstöður undirskriftalista á pdf formi, rafrænt undirritað.
- Ábyrgðarmaður afhendir forsvarsmanni sveitarfélags undirskriftir og niðurstöður ásamt staðfestingu Þjóðskrá Íslands.
Reglugerð um undirskriftasafnanir vegna almennra atkvæðagreiðslna samkvæmt sveitarstjórnarlögum
Undirskriftalisti vegna óska um borgarafundi samkvæmt sveitarstjórnarlögum
- Ábyrgðarmaður tilkynnir sveitarstjórn um fyrirhugaða undirskriftasöfnun.
- Sveitarstjórn auglýsir undirskriftalista opinberlega og tilkynnir Þjóðskrá Íslands.
- Ábyrgðarmaður sækir um að virkja undirskriftalista á Ísland.is
- Listinn getur bæði verið rafrænn og á pappír.
- Ábyrgðarmaður afhendir Þjóðskrá Íslands pappírsundirskriftir í frumriti og á rafrænu formi (excel – csv) Frumritið skal vera á númeruðum blaðsíðum 1, 2, osfrv. Fyrsta nafn á frumriti sama og fyrsta nafn á rafrænu formi.
- Þjóðskrá Íslands afhendir ábyrgðarmanni niðurstöður undirskriftalista á pdf formi, rafrænt undirritað.
- Ábyrgðarmaður afhendir forsvarsmanni sveitarfélags undirskriftir og niðurstöður ásamt staðfestingu Þjóðskrá Íslands.
Reglugerð um undirskriftasafnanir vegna óska um borgarafundi samkvæmt sveitarstjórnarlögum