Fara beint í efnið

Prentað þann 16. maí 2024

Stofnreglugerð

477/2024

Reglugerð um úthlutun á WTO tollkvótum fyrir landbúnaðarvörur.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar matvælaráðherra tollkvótum skv. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og viðauka III A.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tímabil innflutnings, vörumagn, verð- og magntoll:

Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
kg % kr./kg
Tollskrárnr.: Nautgripakjöt - vöruliðir 0201, 0202 og 0210: 95.000
0201.3xxx Kjöt af dýrum af nautgripakyni, nýtt, kælt 01.07.24-30.06.25 0 931
0202.3xxx Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst 01.07.24-30.06.25 0 931
Kjöt af dýrum af nautgripakyni, saltað, þurrkað eða reykt:
0210.2001 Beinlaust 01.07.24-30.06.25 0 567
Tollskrárnr.: Svínakjöt - vöruliðir 0203 og 0210: 64.000
Svínakjöt, nýtt, kælt:
0203.1100 Skrokkar og hálfir skrokkar 01.07.24-30.06.25 0 244
Læri, bógur og sneiðar úr því, með beini:
0203.1201 Læri og lærisneiðar 01.07.24-30.06.25 0 361
0203.1209 Bógar og bógbitar 01.07.24-30.06.25 0 361
0203.19xx Svínakjöt, nýtt, kælt: 01.07.24-30.06.25 0 361
Svínakjöt, fryst:
0203.2100 Skrokkar og hálfir skrokkar 01.07.24-30.06.25 0 244
Læri, bógur og sneiðar úr því, með beini:
0203.2201 Læri og lærisneiðar 01.07.24-30.06.25 0 490
0203.2209 Bógar og bógbitar 01.07.24-30.06.25 0 490
Með beini:
0203.29xx Svínakjöt, fryst 01.07.24-30.06.25 0 754
Af svínum, fryst:
0206.4100 Lifur 01.07.24-30.06.25 0 81
0206.4900 Annað 01.07.24-30.06.25 0 201
0209.1000 Af svínum - svínafita 01.07.24-30.06.25 0 70
Svínakjöt, saltað, þurrkað eða reykt:
0210.1100 Læri, bógur og sneiðar úr því, með beini 01.07.24-30.06.25 0 398
0210.1200 Slög og sneiðar af þeim, beinlaust 01.07.24-30.06.25 0 540
0210.1901 Reykt - beinlaust 01.07.24-30.06.25 0 613
0210.1902 Annað 01.07.24-30.06.25 0 613
0210.1909 Annars - beinlaust 01.07.24-30.06.25 0 613
Tollskrárnr.: Kinda eða geitakjöt - vöruliðir 0204 og 0210 345.000
0204.1000 Lambaskrokkar, heilir eða hálfir - nýir, kældir og frystir 01.07.24-30.06.25 0 202
Annað kindakjöt, nýtt eða kælt:
0204.2100 Skrokkar, heilir eða hálfir - nýir, kældir og frystir 01.07.24-30.06.25 0 202
Sneitt á annan hátt, með beini:
0204.22xx Kindakjöt, nýtt, kælt 01.07.24-30.06.25 0 358
Beinlaust:
0204.23xx Kindakjöt, nýtt, kælt 01.07.24-30.06.25 0 694
0204.3000 Lambaskrokkar, heilir eða hálfir - frystir 01.07.24-30.06.25 0 202
0204.4xxx Kindakjöt, fryst 01.07.24-30.06.25 0 202
0204.5000 Geitakjöt 01.07.24-30.06.25 0 0
Annað fryst:
0206.9001 Svið (sviðahausar) 01.07.24-30.06.25 0 111
0206.9009 Annars 01.07.24-30.06.25 0 319
Kindakjöt, saltað, þurrkað eða reykt.
0210.9921 Beinlaust 01.07.24-30.06.25 0 451
0210.9929 Annars 01.07.24-30.06.25 0 451
0210.9931 Beinlaust 01.07.24-30.06.25 0 664
0210.9939 Annars 01.07.24-30.06.25 0 664
Tollskrárnr: Kjöt af hrossum o.fl. - vöruliður 0205 15.000
0205.0000 Kjöt af hrossum, ösnum, múlösnum eða múldýrum, nýtt, kælt eða fryst 01.07.24-30.06.25 0 130
Tollskrárnr: Kjöt af alifuglum - vöruliður 0207: 59.000
Af hænsnum af tegundinni Gallus domisticus:
0207.1xxx Af hænsnum, nýtt, kælt og fryst 01.07.24-30.06.25 0 277
Af kalkúnum:
0207.2xxx Af kalkúnum, nýtt, kælt og fryst 01.07.24-30.06.25 0 381
Af öndum, gæsum eða perluhænsnum:
0207.4xxx Af öndum, nýtt, kælt og fryst 01.07.24-30.06.25 0 381
0207.5xxx Af gæsum, nýtt, kælt og fryst 01.07.24-30.06.25 0 381
0207.6xxx Af perluhænsnum, nýtt, kælt og fryst 01.07.24-30.06.25 0 381
Tollskrárnr.: Smjör og önnur fita 53.000
0405.xxxx Smjör og önnur fita 01.07.24-30.06.25 0 374
Tollskrárnr.: Ostur og ystingur: 119.000
0406.1011 Skyr með viðbættum sykri eða sætuefni 01.07.24-30.06.25 0 266
0406.1019 Annað skyr 01.07.24-30.06.25 0 266
0406.1090 Annað 01.07.24-30.06.25 0 266
0406.2000 Hvers konar rifinn eða mulinn ostur 01.07.24-30.06.25 0 266
0406.3000 Fullunninn ostur, órifinn eða ómulinn 01.07.24-30.06.25 0 199
0406.4000 Gráðostur 01.07.24-30.06.25 0 305
0406.9000 Annar ostur 01.07.24-30.06.25 0 298
Tollskrárnr.: Fuglsegg: 76.000
0407 Fuglsegg, í skurn, ný varin skemmdum eða soðin:
Frjóegg til útungunar:
0407.1100 Af hænsnum af tegundinni Gallus domestictus 01.07.24-30.06.25 0 146
0407.1900 Önnur 01.07.24-30.06.25 0 146
Önnur fersk egg:
0407.2100 Af hænsnum af tegundinni Gallus domesticus 01.07.24-30.06.25 0 146
0407.2900 Önnur 01.07.24-30.06.25 0 146
0407.9000 Önnur 01.07.24-30.06.25 0 146
0408 Fuglsegg, skurnlaus, og eggjarauða, nýtt, þurrkað, soðið í gufu eða vatni, mótað, fryst eða varið skemmdum með öðrum hætti, einnig með viðbættum sykri eða öðru sætuefni:
Eggjarauða:
0408.1100 Þurrkuð 01.07.24-30.06.25 0 613
Önnur:
0408.1901 Gerilsneyddar eggjarauður með 7% saltinnihaldi, í 5 kg umbúðum eða stærri 01.07.24-30.06.25 0 163
0408.1909 Annars 01.07.24-30.06.25 0 163
Annað:
0408.9100 Þurrkað 01.07.24-30.06.25 0 613
Annars:
0408.9901 Soðin egg, í 10 kg umbúðum eða stærri 01.07.24-30.06.25 0 163
0408.9909 Annars 01.07.24-30.06.25 0 163
Tollskrárnr.: Kjötvörur úr vörulið 1602: 86.000
1602.1011 Blönduð matvara meira en 60% af kjöti 01.07.24-30.06.25 0 157
1602.1012 Meira en 20% til og með 60% 01.07.24-30.06.25 0 157
1602.2011 Meira en 60% af dýralifur 01.07.24-30.06.25 0 219
1602.2012 Meira en 20% til og með 60% af dýralifur 01.07.24-30.06.25 0 219
1602.2019 Annað 01.07.24-30.06.25 0 44
1602.2021 Annað, meira en 60% af dýralifur 01.07.24-30.06.25 0 219
1602.2022 Annað, meira en 20%, til og með 60% 01.07.24-30.06.25 0 78
1602.2029 Annað 01.07.24-30.06.25 0 26
1602.3101 Úr kalkúnum meira en 60% 01.07.24-30.06.25 0 381
1602.3102 Úr kalkúnum meira en 20% til og með 60% 01.07.24-30.06.25 0 381
1602.3109 Annað 01.07.24-30.06.25 0 115
1602.3201 Úr hænsnum meira en 60% 01.07.24-30.06.25 0 381
1602.3202 Úr hænsnum meira en 20%, til og með 60% 01.07.24-30.06.25 0 381
1602.3209 Annað 01.07.24-30.06.25 0 115
1602.3901 Annað meira en 60% úr alifuglum 01.07.24-30.06.25 0 381
1602.3902 Annað 20% til og með 60% úr alifuglum 01.07.24-30.06.25 0 381
1602.3909 Annað 01.07.24-30.06.25 0 115
1602.4101 Úr svínum meira en 60%, læri og lærissneiðar 01.07.24-30.06.25 0 980
1602.4102 Meira en 20% til og með 60%, af kjöti 01.07.24-30.06.25 0 343
1602.4109 Annað 01.07.24-30.06.25 0 115
1602.4201 Meira en 60% af kjöti, bógur og bógsneiðar 01.07.24-30.06.25 0 823
1602.4202 Meira en 20% til og með 60%, af kjöti 01.07.24-30.06.25 0 247
1602.4209 Annað 01.07.24-30.06.25 0 83
1602.4901 Annað meira en 60% af kjöti, blöndur 01.07.24-30.06.25 0 980
1602.4902 Annað meira en 20% til og með 60%, af kjöti 01.07.24-30.06.25 0 307
1602.4909 Annað 01.07.24-30.06.25 0 102
1602.5001 Meira en 60% kjöt úr nautgripum 01.07.24-30.06.25 0 680
1602.5002 Meira en 20% til og með 60%, af kjöti 01.07.24-30.06.25 0 304
1602.5009 Annað 01.07.24-30.06.25 0 102
1602.9011 Úr dilkakjöti meira en 60% af kjöti 01.07.24-30.06.25 0 980
1602.9012 Meira en 20% til og með 60%, af kjöti 01.07.24-30.06.25 0 265
1602.9019 Annað 01.07.24-30.06.25 0 89
1602.9021 Annað, úr öðru kjöti meira en 60% 01.07.24-30.06.25 0 980
1602.9022 Annað, meira en 20% til og með 60%, af kjöti 01.07.24-30.06.25 0 265
1602.9029 Annað 01.07.24-30.06.25 0 89

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt ákvæðum búvörulaga nr. 99/1993. Tollkvótar eru auglýstir á vefsíðu matvælaráðuneytisins þar sem tilgreindir eru skilmálar og fram koma frekari upplýsingar um framkvæmd úthlutunarinnar.

4. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt. Einnig er heimilt í stað ábyrgðaryfirlýsingar að greiða andvirði tollkvóta á reikning Fjársýslunnar og láta kvittun fylgja tilboðsgögnum á mar@mar.is. Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is.

Tilboðsgjafi sá er fær úthlutað tollkvóta skal leysa hann til sín með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs. Úthlutun er ekki framseljanleg.

5. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 1250/2019 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

6. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 5. mgr. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. júní 2025.

Matvælaráðuneytinu, 11. apríl 2024.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Elísabet Anna Jónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.