Fara beint í efnið

Prentað þann 16. maí 2024

Stofnreglugerð

492/2024

Reglugerð um brottfall reglugerða á sviði lyfja og lækningatækja.

1. gr.

Eftirtalin reglugerð á sviði lyfjamála fellur brott:

  1. Reglugerð nr. 412/2012 um álagningu dagsekta sem Lyfjastofnun ákveður.

2. gr.

Eftirtaldar reglugerðir á sviði lækningatækja falla brott:

  1. Reglugerð nr. 320/2011 um virk, ígræðanleg lækningatæki.
  2. Reglugerð nr. 934/2010 um lækningatæki.
  3. Reglugerð nr. 936/2011 um lækningatæki til sjúkdómsgreiningar í glasi.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 109. gr. lyfjalaga, nr. 100/2020 og 48. gr. laga um lækningatæki nr. 132/2020, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 4. apríl 2024.

Willum Þór Þórsson.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.