Fara beint í efnið

Prentað þann 16. maí 2024

Breytingareglugerð

493/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 667/1995, um framtal og skil á virðisaukaskatti.

1. gr.

3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Aðili, sem selur virðisaukaskattsskylda vöru eða þjónustu fyrir minna en 4.000.000 kr. á heilu almanaksári, getur óskað eftir því við ríkisskattstjóra að nota almanaksár sem uppgjörstímabil á næsta almanaksári. Sækja skal um breytt uppgjörstímabil til ríkisskattstjóra fyrir 15. febrúar vegna yfirstandandi almanaksárs á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.

Ákvæði 1. mgr. tekur ekki til eftirtalinna aðila:

  1. Aðila sem falla undir 2. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr.
  2. Aðila sem skráðir eru samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 577/1989, um frjálsa og sérstaka skráningu vegna leigu eða sölu á fasteign.
  3. Umboðsmanna og annarra sem eru í fyrirsvari fyrir erlenda aðila sem reka hér á landi skattskyld viðskipti, skv. 6. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 50/1988.

Þegar velta þess aðila sem notar almanaksárið sem uppgjörstímabil er orðin 4.000.000 kr. eða hærri skal hann á næsta gjalddaga almennra uppgjörstímabila, sbr. 1. gr., gera upp mismun þess útskatts og innskatts sem fallið hefur á sölu og kaup hans á almanaksárinu. Frá og með því uppgjörstímabili ber honum að gera upp virðisaukaskatt á gjalddögum almennra uppgjörstímabila skv. 1. mgr. 8. gr.

Aðili sem notar almanaksárið sem uppgjörstímabil skal gera skil á virðisaukaskatti viðkomandi árs á gjalddaga þess almenna uppgjörstímabils sem starfsemi lýkur á.

Hafi aðili sem notar almanaksárið sem uppgjörstímabil ekki skilað lögboðinni virðisaukaskattsskýrslu vegna undanfarins almanaksárs fyrir ákvörðun virðisaukaskatts skv. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 50/1988, skal hann gera upp virðisaukaskatt næsta almanaksárs þar á eftir samkvæmt almennum uppgjörstímabilum, sbr. 1. gr. Ríkisskattstjóri skal tilkynna aðila um breytt uppgjörstímabil samkvæmt þessu ákvæði.

2. gr.

Í stað "6. mgr." í 1. málsl. 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: 3. mgr.

3. gr.

2. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild 1. mgr. 24. gr. og 1. mgr. 49. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 9. apríl 2024.

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Brynhildur Kr. Aðalsteinsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.