Fara beint í efnið

Prentað þann 16. maí 2024

Stofnreglugerð

503/2024

Reglugerð um samræmda eftirlitsáætlun Sambandsins til margra ára fyrir árin 2024, 2025 og 2026 til þess að tryggja að farið sé að ákvæðum um hámarksgildi varnarefnaleifa og meta þau áhrif sem neytendur verða fyrir af völdum varnarefnaleifa í og á matvælum úr jurta- og dýraríkinu og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2022/741.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 13/2024, frá 2. febrúar 2024, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/731 frá 3. apríl 2023 um samræmda eftirlitsáætlun Sambandsins til margra ára fyrir árin 2024, 2025 og 2026 til þess að tryggja að farið sé að ákvæðum um hámarksgildi varnarefnaleifa og meta þau váhrif sem neytendur verða fyrir af völdum varnarefnaleifa. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, frá 21. mars 2024, bls. 239.

2. gr.

Við 5. tölul. II. viðauka framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/741 bætist eftirfarandi:

IS 12
NO 12

3. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Reglugerð nr. 626/2023 um samræmda eftirlitsáætlun fyrir árin 2023, 2024 og 2025 til þess að tryggja að farið sé að ákvæðum um hámarksgildi varnarefnaleifa og meta þau váhrif sem neytendur verða fyrir af völdum varnarefnaleifa í og á matvælum úr jurta- og dýraríkinu skal gilda til 1. júlí 2024 fyrir sýni sem prófuð voru árið 2023.

Matvælaráðuneytinu, 8. apríl 2024.

F. h. r.

Benedikt Árnason.

Emilía Madeleine Heenen.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.