Fara beint í efnið

Prentað þann 16. maí 2024

Breytingareglugerð

508/2024

Reglugerð um (11.) breytingu á reglugerð nr. 1205/2021 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1831/2003 um aukefni í fóðri.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætast 12 nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1333 frá 29. júní 2023 um leyfi fyrir blöndu með endó-1,3(4)-betaglúkanasa, sem er framleiddur með Aspergillus fijiensis CBS 589.94, sem fóðuraukefni fyrir eldiskjúklinga og fráfærugrísi (leyfishafi er DSM Nutritional Products Ltd, fulltrúi hans er DSM Nutritional Products Sp. z o.o.), um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1811/2005 og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 1259/2004. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 307/2023, frá 8. desember 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11, frá 1. febrúar 2024, bls. 257.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1698 frá 6. september 2023 um endurnýjun á leyfi fyrir blöndu með kalíumdíformati sem fóðuraukefni fyrir gyltur (leyfishafi er ADDCON Europe GmbH) og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 104/2010. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2024, frá 2. febrúar 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, frá 21. mars 2024, bls. 69.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1699 frá 4. janúar 2023 um leiðréttingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) frá 6. september 2023 um stöðu attapúlgíts sem fóðuraukefnis innan gildissviðs reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1831/2003. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2024, frá 2. febrúar 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, frá 21. mars 2024, bls. 74.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1703 frá 7. september 2023 um endurnýjun á leyfi fyrir blöndu með endó-1,4-betaxýlanasa, sem er framleiddur með Trichoderma reesei CBS 143953, og endó-1,4-betaglúkanasa, sem er framleiddur með Trichoderma reesei CBS 143945, sem fóðuraukefni fyrir alifuglategundir, fráfærugrísi, eldissvín, mjólkandi gyltur og aukategundir svína (fráfærugrísi, eldissvín og mjólkandi gyltur), leyfi fyrir þeirri blöndu fyrir mjólkurgrísi og aukategundir svína (mjólkurgrísi) (leyfishafi er Danisco (UK) Ltd, viðskipti fara fram undir heitinu Danisco Animal Nutrition og fulltrúi hans er Genencor International B.V.) og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 337/2011 og framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/997. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2024, frá 2. febrúar 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, frá 21. mars 2024, bls. 76.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1704 frá 7. september 2023 um endurnýjun á leyfi fyrir blöndu með Pediococcus pentosaceus DSM 23376 sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1119/2012. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2024, frá 2. febrúar 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, frá 21. mars 2024, bls. 81.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1705 frá 7. september 2023 um leyfi fyrir blöndu með ríbóflavíni (B2-vítamíni), sem er framleitt með Bacillus subtilis CGMCC 13326, sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2024, frá 2. febrúar 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, frá 21. mars 2024, bls. 84.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1707 frá 7. september 2023 um leyfi fyrir 2-asetýlfúrani og 2-pentýlfúrani sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2024, frá 2. febrúar 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, frá 21. mars 2024, bls. 87.
  8. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1708 frá 7. september 2023 um endurnýjun á leyfi fyrir þvagefni sem fóðuraukefni fyrir jórturdýr með virka vömb og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 839/2012. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2024, frá 2. febrúar 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, frá 21. mars 2024, bls. 91.
  9. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1709 frá 7. september 2023 um leyfi fyrir blöndu með Lentilactobacillus diolivorans DSM 33625 sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2024, frá 2. febrúar 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, frá 21. mars 2024, bls. 94.
  10. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1710 frá 7. september 2023 um endurnýjun á leyfi fyrir blöndu með ammóníumklóríði sem fóðuraukefni fyrir öll jórturdýr og ketti og hunda, leyfi fyrir blöndu með ammóníumklóríði sem fóðuraukefni fyrir gyltur (leyfishafi er Latochema Co. Ltd) og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 832/2012 og (ESB) 2016/1007. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2024, frá 2. febrúar 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, frá 21. mars 2024, bls. 97.
  11. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1711 frá 7. september 2023 um endurnýjun á leyfi fyrir blöndu með gerjunarafurð Aspergillus oryzae NRRL 458 sem fóðuraukefni fyrir mjólkurkýr og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 537/2007 (leyfishafi er Biozyme Incorporated). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2024, frá 2. febrúar 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, frá 21. mars 2024, bls. 102.
  12. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1713 frá 7. september 2023 um leyfi fyrir blöndu með endó-1,4-betaxýlanasa, sem er framleiddur með Trichoderma reesei ATCC PTA-5588, próteasa, sem er framleiddur með Bacillus subtilis CBS 148232, og alfaamýlasa, sem er framleiddur með Bacillus licheniformis ATCC SD-6525, fyrir eldiskjúklinga, kjúklinga sem eru aldir til að verða varphænur og aukategundir alifugla (leyfishafi er Danisco (UK) Ltd, fulltrúi hans hjá Sambandinu er Genencor International B.V.) Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2024, frá 2. febrúar 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, frá 21. mars 2024, bls. 106.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 8. apríl 2024.

F. h. r.

Benedikt Árnason.

Svava Pétursdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.