Fara beint í efnið

Kvörtun vegna velferðarþjónustu

Kvörtun vegna velferðarþjónustu

Frumkvæðiseftirlit

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) sinnir eftirliti með gæðum þjónustu. Eftirlit getur verið reglubundið, byggt á áhættumati eða vegna ákveðins tilefnis, ábendinga eða upplýsinga sem stofnuninni hefur borist vegna kvörtunarmáls.

Ferli

GEV aflar upplýsinga og gagna sem eru nauðsynleg eru.

  • GEV framkvæmir vettvangsathuganir á heimilum, stofnunum og öðrum starfsstöðvum þar sem veitt er þjónusta sem lýtur eftirliti stofnunarinnar.

  • GEV er heimilt að framkvæma vettvangsathugun án þess að gera boð á undan sér.

  • Við framkvæmd vettvangsathugana ber stofnuninni að gæta að friðhelgi einkalífs þeirra sem búa eða dvelja á heimilum og stofnunum sem athuganir lúta að.

  • Sá sem veitir eftirlitsskylda þjónustu skal veita stofnuninni frjálsan aðgang að öllum starfsstöðvum sínum.

  • Stofnuninni er heimilt að afla milliliðalaust upplýsinga frá notendum þjónustunnar, aðstandendum og starfsfólki.

  • Við framkvæmd eftirlits skulu notendur fá tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við stofnunina í samræmi við markmið þjónustunnar og aðstæður notenda.

Frumkvæðisathugunum stofnunarinnar lýkur með skýrslu þar sem gerð grein fyrir tilefni eftirlits, framkvæmd athugunar, gagnaöflun, lýsingu á vettvangsathugun og niðurstöðum stofnunarinnar um hvort þjónusta sé í samræmi við gæðaviðmið og ákvæði laga, reglugerða, reglna, samninga og leiðbeininga og/eða skilyrði rekstrarleyfis.

Ef tilefni er til skal stofnunin setja fram tilmæli um úrbætur sem gera verður innan ákveðins tíma.

Lög

Um stjórnsýslukæru vegna stjórnvaldsákvarðana Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála fer samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga sbr. 14.-16. gr. laga um stofnunina.

Kvörtun vegna velferðarþjónustu

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála

Hafðu samband

Sími: 540 0040

gev@gev.is

Heimilisfang

Suðurlandsbraut 24, 5. hæð

108 Reykjavík

kt. 611221 0100

Hafðu samband

Sími: 540 0040

gev@gev.is

Heimilisfang

Suðurlandsbraut 24, 5. hæð

108 Reykjavík

kt. 611221 0100