Fara beint í efnið

Leyfi til að taka barn í bráðavistun 84. gr.

Umsókn um bráðavistun

Einstaklingar geta sótt um leyfi til að veita barni eða börnum vistun í bráðatilvikum.

Fyrst og fremst er um að ræða börn sem ekki er talið að þurfi sérhæfða meðferð en geta ekki verið á heimili sínu um tíma, t.d. á meðan mál er kannað eða önnur lausn fundin. Undir þetta fellur vistun á

  • vistheimili

  • einkaheimili

  • samsvarandi úrræði

Einnig er hægt að sækja um leyfi til að taka börn í fóstur.

Umsóknarferli

  1. Umsækjandi sækir um leyfi til GEV.

  2. GEV kannar hvort nauðsynlegar upplýsingar og rétt fylgigögn fylgi umsókn.

  3. GEV sendir umsagnarbeiðni til barnaverndarþjónustu eða félagsþjónustu.

  4. Barnaverndarþjónusta eða félagsþjónusta skilar umsögn til GEV.

  5. GEV tekur ákvörðun um útgáfu leyfis og svarar umsækjanda.

Fylgigögn með umsókn ef einstaklingur

  • Samþykki fyrir öflun sakavottorðs allra heimilsmeðlima eldri en 15 ára. Prenta þarf út eyðublaðið og fylla það út.

  • Læknisvottorð frá heimilislækni sem staðfestir heilsufar umsækjanda og hvort viðkomandi hafi langvinna líkamlega eða geðræna sjúkdóma sem hafa áhrif á daglega virkni.

Ferill umsóknar

Þegar öll gögn og upplýsingar liggja fyrir getur stofnunin lagt endanlegt mat á umsóknina og tekið ákvörðun um hvort leyfi verði gefið út.

Umsókn um bráðavistun

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála

Hafðu samband

Sími: 540 0040

gev@gev.is

Heimilisfang

Suðurlandsbraut 24, 5. hæð

108 Reykjavík

kt. 611221 0100

Hafðu samband

Sími: 540 0040

gev@gev.is

Heimilisfang

Suðurlandsbraut 24, 5. hæð

108 Reykjavík

kt. 611221 0100