Fara beint í efnið

Leyfi til að taka barn í fóstur

Umsókn um leyfi til að taka barn í fóstur

Sækja þarf um leyfi til að taka börn í fóstur. Fósturleyfi eru veitt til allt að fimm ára en þá þarf að endurnýja umsóknina.

Fóstur felst í því að barnaverndarþjónusta feli sérstökum fósturforeldrum umsjá barns í að minnsta kosti 3 mánuði. Markmið fósturs er að tryggja barni uppeldi og umönnun innan fjölskyldu svo sem best hentar þörfum þess. Á vef Barna- og fjölskyldustofu má finna nánari upplýsingar um fóstur.

Hjón og sambýlisfólk skulu sækja um saman.

Umsóknarferli

  1. Umsækjandi sækir um leyfi til GEV og skilar fylgigögnum.

  2. GEV kannar hvort nauðsynlegar upplýsingar og gögn fylgi umsókn.

  3. Umsagnarbeiðni er send til Barna- og fjölskyldustofu.

  4. Barna- og fjölskyldustofa boðar umsækjanda á námskeið og skilar í framhaldinu umsögn til GEV

  5. GEV tekur ákvörðun um útgáfu leyfis og upplýsir umsækjanda.

Fylgigögn með umsókn

  • Samþykki fyrir öflun sakavottorðs allra heimilsmeðlima 15 ára og eldri. Prenta þarf út eyðublaðið og fylla það út.

  • Læknisvottorð frá heimilislækni sem staðfestir líkamlegt og andlegt heilsufar umsækjanda

  • Skattaskýrslur síðastliðinna tveggja ára. Skýrslurnar má nálgast rafrænt á þjónustuvef Ríkisskattstjóra (ef ný umsókn, annars skattaskýrsla sl. árs ef endurnýjun)

Umsókn um leyfi til að taka barn í fóstur

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála

Hafðu samband

Sími: 540 0040

gev@gev.is

Heimilisfang

Suðurlandsbraut 24, 5. hæð

108 Reykjavík

kt. 611221 0100

Hafðu samband

Sími: 540 0040

gev@gev.is

Heimilisfang

Suðurlandsbraut 24, 5. hæð

108 Reykjavík

kt. 611221 0100