Fara beint í efnið

Löggilding rafverktaka

Svipting löggildingar

HMS getur svipt rafverktaka löggildingu ef öryggisstjórnun hans fullnægir ekki lögum og reglum á rafmagnsöryggissviði.

Ástæða sviptingar getur meðal annars verið að skoðun öryggisstjórnunarkerfis rafverktaka sýnir verulega ágalla.

Helstu ástæður fyrir skoðun öryggisstjórnunarkerfa eru:

  • Ábendingar berast um slæman frágang raflagna.

  • Úrtaksskoðanir sýna fjölda athugasemda.

  • Endurskoðanir sýna að gerðar athugasemdir hafa ekki verið lagfærðar.

  • Rafverktaki lýkur ekki við verk sem hann hefur tekið að sér.

  • Rafverktaki sinnir ekki fyrirmælum HMS.

Ákvörðun um leyfissviptingu er send viðkomandi í ábyrgðarbréfi eða með öðrum tryggilegum hætti.

Leyfissviptingu má vísa til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, samkvæmt 11. gr. í lögum um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga.