Kosning utan kjörfundar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hjá sýslumönnum vegna forsetakjörs þann 1. júní 2024 hófst 3. maí 2024.
Upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma verður að finna undir hverju embætti fyrir sig hér að neðan.
Athugið að upplýsingar geta breyst án fyrirvara.
Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum svo sem vegabréfi, ökuskírteini eða nafnskírteini við kosninguna.
Kjósandi getur sótt um að greiða atkvæði í heimahúsi ef hann getur ekki sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun. Þeir sem fyrirsjáanlega þurfa að óska eftir að fá að greiða atkvæði í heimahúsi eru hvattir til að skila beiðni inn tímanlega. Nánari upplýsingar og umsókn er að finna í listanum hér að neðan.
Nálgast má ýmsar almennar upplýsingar og leiðbeiningar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á vef landskjörstjórnar.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu fer eingöngu fram í Holtagörðum á 1. hæð.
Opnunartími:
3. maí - 20. maí kl. 10:00 - 20:00
21. maí - 31. maí kl. 10:00 - 22:00
Lokað verður uppstigningardag 9. maí og hvítasunnudag 19. maí
Á kjördag laugardaginn 1. júní verður opið frá kl. 10:00 - 17:00 fyrir kjósendur sem ekki geta sótt kjörfund.
Tímasetningar vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar vegna forsetakosninga þann 1. júní 2024 á heilbrigðis- og öldrunarstofnunum, stofnunum fyrir fatlað fólk og í fangelsi.
Fangelsið á Hólmsheiði
Mánudaginn 13. maí, kl. 15:00-17:00.
Laugardaginn 1. júní kl. 10:00-11:00.
Skjól við Kleppsveg, Reykjavík
Mánudaginn 13. maí, kl. 14:00-16:00.
Landspítalinn Háskólasjúkrahús Landakot
Mánudaginn 13. maí, kl. 15:00-18:00.
Hjúkrunarheimilið Hamrar, Mosfellsbæ
Þriðjudaginn 14. maí kl. 14:00-16:00.
Droplaugarstaðir við Snorrabraut, Reykjavík
Þriðjudaginn 14. maí, kl. 15:00-17:00.
Skógarbær við Árskóga, Reykjavík
Þriðjudaginn 14. maí, kl. 15:30-17:00.
Hjúkrunarheimilið Ísafold, Garðabæ
Miðvikudaginn 16. maí, kl. 15:00-17:00.
Seljahlíð, Hjallaseli 55, Reykjavík
Miðvikudaginn 15. maí, kl. 15:00-18:00.
Hrafnista Boðaþing, Kópavogi
Miðvikudaginn 15. maí, kl. 15:30-17:00.
Kleppsspítali, Reykjavík
Fimmtudaginn 15. maí, kl. 15:00-16:00.
Hrafnista Hafnarfirði
Fimmtudaginn 16. maí, 14:00-18:00.
Sunnuhlíð, Kópavogi
Fimmtudaginn 16. maí, kl. 15:00-17:00.
Eir við Hlíðarhús í Grafarvogi, Reykjavík
Föstudaginn 17. maí, kl. 13:00-16:00.
Hjúkrunarheimilið Sóltún, Reykjavík
Föstudaginn 17. maí, kl. 13:00-16:00.
Landspítalinn Vífilsstöðum, Garðabæ
Föstudaginn 17. maí, kl. 15:30-16:30.
Hrafnista Laugarás, Reykjavík
Laugardaginn 18. maí, kl. 11:00-15:00.
Hlaðgerðarkot, Mosfellsbæ
Laugardaginn 18. maí, kl. 13:00-14:00.
Reykjalundur, Mosfellsbæ
Laugardaginn 18. maí, kl. 15:00-16:00.
Hjúkrunarheimilð Roðasalir, Kópavogi
Laugardaginn 18. maí, kl. 13:00-14:00.
Seltjörn á Seltjarnarnesi
Þriðjudaginn 21. maí, kl. 15:00-17:00.
Hrafnista á Sléttuvegi, Reykjavík
Þriðjudaginn 21. maí, kl. 15:00-17:00.
Sólvangur, Hafnarfirði
Þriðjudaginn 21. maí, kl. 15:00-16:30.
Mörk, Reykjavík
Miðvikudaginn 22. maí, kl. 14:00-17:00.
Vík, Kjalarnesi
Miðvikudaginn 22. maí, kl. 15:00-17:00.
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund, Reykjavík
Miðvikudaginn 22. maí, kl. 15:00-18:00.
Landspítalinn Grensásdeild, Reykjavík
Mánudaginn 27. maí, kl. 16:30-18:00.
Landspítalinn Háskólasjúkrahús Fossvogi
Þriðjudaginn 28. maí, kl. 14:00-17:00.
Laugardaginn 1. júní kl. 10:00-12:00.
Landspítalinn Háskólasjúkrahús Hringbraut
Miðvikudaginn 29. maí, kl. 14:00-17:00.
Laugardaginn 1. júní kl. 10:00-12:00.
Landspítalinn, Geðdeild, Háskólasjúkrahús Hringbraut
Miðvikudaginn 29. maí, kl. 15:00-17:00.
Laugardaginn 1. júní kl. 10:00-12:00.
Líknardeildin í Kópavogi
Föstudaginn 31. maí, kl. 15:00-16:30.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í umdæmi Sýslumannsins á Vesturlandi fer fram á eftirtöldum stöðum:
Akranesi - skrifstofu sýslumanns, Kirkjubraut 28, 2. hæð
Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00 til 15:00 og kl. 9:00 til 14:00 á föstudögum.
Borgarnesi - skrifstofu sýslumanns, Bjarnarbraut 2
Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00 til 15:00 og kl. 9:00 til 14:00 á föstudögum.
Búðardal - bæjarskrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11
Alla virka daga kl. 11:00 til 13:00.
Stykkishólmi - skrifstofu sýslumanns, Borgarbraut 2
Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00 til 15:00 og kl. 9:00 til 14:00 á föstudögum.
Snæfellsbæ - skrifstofu Snæfellsbæjar, Klettsbúð 4
Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30 og föstudaga kl. 9:00 til 12:00 og 13:00 til 15:00.
Frá 13. maí er einnig hægt að kjósa á neðangreindum stað:
Grundarfirði - skrifstofu Grundarfjarðarbæjar, Borgarbraut 16
Alla virka daga kl. 10:00 til 14:00.
Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við viðkomandi kjörstjóra.
Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.
Upplýsingar um afgreiðslutíma Sýslumannsins á Vestfjörðum
Greiða má atkvæði utan kjörfundar á kjörstöðum innan umdæmis Sýslumannsins á Norðurlandi vestra sem hér segir:
Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 9:00 - 15:00.
Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 9:00 - 15:00.
Hvammstanga, ráðhúsi Húnaþings vestra að Hvammstangabraut 5, Hvammstanga, mán - fim kl. 9:00 - 16:00 og fös kl. 9:00 - 12:00.
Skagaströnd, stjórnsýsluhúsi að Túnbraut 1-3, Skagaströnd, virka daga kl. 10:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00.
Fimmtudagana 23. maí og 30. maí nk. verður opið til kl. 18:00 á skrifstofum sýslumanns að Hnjúkabyggð 33, Blönduósi og Suðurgötu 1, Sauðárkróki. Á kjördag verður opið á báðum skrifstofum milli 11:00 - 15:00.
Atkvæðagreiðsla á heilbrigðisstofnunum innan umdæmisins fer fram sem hér segir:
HSN Blönduósi, Flúðabakka 2, Blönduósi, miðvikudaginn 29. maí kl. kl. 15:30 - 16:30.
HSN Sauðárkróki, Sauðárhæðum, Sauðárkróki, miðvikudaginn 22. maí kl. 15:15 -16:15.
HVE Hvammstanga, Spítalastíg 1, Hvammstanga, miðvikudaginn 29. maí kl. 16:00 - 17:00.
Sæborg Skagaströnd, Ægisgrund 14, Skagaströnd, miðvikudaginn 29. maí kl. 15:30 - 16:30.
Atkvæðagreiðsla í heimahúsi:
Kjósandi, sem vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, getur hvorki sótt kjörfund né kosið utan kjörfundar, getur óskað þess að greiða atkvæði í heimahúsi. Skrifleg umsókn studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans skal hafa borist kjörstjóra eigi síðar en kl. 10:00 fimmtudaginn 30. maí. Mælst er til að beiðnir þessa efnis berist kjörstjóra án ástæðulauss dráttar.
Ábyrgð á atkvæði:
Athygli er vakin á því að kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði til skila, kjósi hann utan kjörfundar hjá kjörstjóra í umdæmi sýslumanns þar sem hann á ekki lögheimili. Nægjanlegt er að koma bréfi með utankjörfundaratkvæði í einhverja kjördeild þess kjördæmis þar sem kjósandinn er á kjörskrá. Kjörstjóri annast póstsendingu atkvæðis að beiðni kjósanda. Allir kjósendur, sem greiða atkvæði utan kjörfundar á kjördag, bera sjálfir ábyrgð á að koma atkvæði sínu til skila.
Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum við kosninguna (ökuskírteini, vegabréfi eða nafnskírteini).
Vakin er athygli á að unnt er að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum sýslumanna um land allt.
Hægt er að greiða atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættis Sýslumannsins á Norðurlandi eystra sem hér segir:
Akureyri, Geislagötu 5 við Bankastíg, alla virka daga kl. 10:00 - 19:00.
Um helgar og annan í hvítasunnu kl. 11:00 - 15:00.
Á kjördag kl. 10:00 - 17:00.
Húsavík, Útgarði 1, mán. til fim. kl. 9:00 - 15:00 og föstud. kl. 9:00 - 14:00.
Um helgar og annan í hvítasunnu kl. 10:00 - 13:00.
Á kjördag kl. 10:00 - 12:00.
Siglufjörður, Gránugötu 6, mán. til fim. kl. 9:00 - 15:00 og föstud. kl. 9:00 - 14:00.
Um helgar og annan í hvítasunnu kl. 9:00 - 12:00.
Á kjördag kl. 10:00 - 12:00.
Þórshöfn, Fjarðarvegi 3, virka daga frá kl.10:00 til 14:00.
Lokað er á hvítasunnudag 19. maí.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í samstarfi við sveitarfélögin:
Dalvíkurbyggð: Ráðhúsinu, 2. hæð, virka daga kl. 10:00 - 12:00.
Grýtubakkahreppur: Túngötu 3, Grenivík, þriðjudaga til fimmtudaga kl. 10:00 - 15:00.
Þingeyjarsveit: Kjarna, Laugum, miðvikudaga og föstudaga kl. 11:00 - 15:00.
Mývatnssveit: Íþróttamiðstöðinni í Reykjahlíð, fimmtudaga kl. 13:00 - 15:00.
Raufarhöfn: Skrifstofu Norðurþings, Aðalbraut 23, virka daga kl. 10:00-12:00 eða skv. samkomulagi.
Kópasker: Skrifstofu Norðurþings, Bakkagötu 10, miðvikudaga og föstudaga kl. 10:00-12:00 eða skv. samkomulagi.
Hrísey: Skrifstofu Akureyrarbæjar í Hrísey, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 11:00- 12:00.
Grímsey: Skrifstofu kjörstjóra, Önnu Maríu Sigvaldadóttur, skv. samkomulagi.
Kjósendur skulu hafa meðferðis gild persónuskilríki (ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini). Unnt er að framvísa rafrænum skilríkjum.
Umsókn um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, skal berast eigi síðar en fimmtudaginn 30. maí kl. 10:00.
Atkvæðagreiðsla á heilbrigðis- og öldrunarstofnunum:
Akureyri og nágrenni:
Hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð, miðvikudaginn 22. maí, frá kl. 13:00
Öldrunarheimilið Hlíð, fimmtudaginn 23. maí, frá kl. 13:00
Kristnesspítali, þriðjudaginn 28. maí, frá kl. 13:00
Sjúkrahúsið á Akureyri, miðvikudaginn 29. maí, frá kl. 13:00
Húsavík:
Dvalarheimilið Hvammur, fimmtudaginn 23. maí, kl. 10:00-11:30
Heilbrigðisstofnun Norðurlands, þriðjudaginn 28. maí, frá kl. 13:00
Þórshöfn:
Dvalarheimilið Naust, þriðjudaginn 28. maí, frá kl. 14:15
Siglufjörður:
Heilbrigðisstofnun Norðurlands, mánudaginn 27. maí frá kl. 13:00
Ólafsfjörður:
Hornbrekka heimili aldraðra, miðvikudaginn 22. maí, frá kl. 13:00
Dalvík: Dvalarheimilið Dalbær, miðvikudaginn 29. maí, frá kl. 13:00
Atkvæðagreiðslan er einungis ætluð þeim sem dvelja á viðkomandi stofnunum.
Bent er á vefsíðuna www.syslumenn.is og www.kosning.is þar sem nálgast má eyðublöð og allar nauðsynlegar upplýsingar vegna komandi kosninga.
Ábyrgð á atkvæði:
Athygli er vakin á því að kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði til skila, kjósi hann utan kjörfundar hjá kjörstjóra í umdæmi sýslumanns þar sem hann á ekki lögheimili. Nægjanlegt er að koma bréfi með utankjörfundaratkvæði í einhverja kjördeild þess kjördæmis þar sem kjósandinn er á kjörskrá. Á kjördag bera allir kjósendur, sem greiða atkvæði utan kjörfundar, sjálfir ábyrgð á að koma atkvæði sínu til skila.
Hægt er að greiða atkvæði utan kjörfundar á opnunartíma á skrifstofum embættis Sýslumannsins á Austurlandi, mánudaga til fimmtudaga kl. 9.00-15.00 en föstudaga kl. 9.00-14.00.
Skrifstofur embættisins eru á eftirtöldum stöðum:
Bjólfsgötu 7, Seyðisfirði.
Strandgötu 52, Eskifirði.
Lyngási 15, Egilsstöðum.
Lónabraut 2, Vopnafirði.
Kjósendur skulu hafa meðferðis gild persónuskilríki (ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini). Hægt verður að skanna skilríki sem vistuð eru í síma.
Frá 21. - 31. maí verður hægt að kjósa á skrifstofu sýslumanns á Egilsstöðum og á Eskifirði, mánudaga til föstudaga frá klukkan 9-17.
Hægt verður að kjósa á skrifstofu sveitarstjórnar Múlaþings á Djúpavogi og á Borgarfirði eystri frá og með mánudeginum 6. maí 2024 sem hér segir:
Skrifstofa Múlaþings Borgarfirði eystra - Hreppsstofa.
Skrifstofa opin virka daga milli kl. 8.00 til 12.00 og 13.00 til 16.30Skrifstofa Múlaþings Djúpavogi - Bakki 1.
Skrifstofa á Djúpavogi opin virka daga milli kl. 10.00 til 14.00.
Kosningar á sjúkrastofnunum verða auglýstar þegar nær dregur.
Hægt er að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá embætti Sýslumannsins á Suðurlandi á opnunartíma sýsluskrifstofa, kl. 9:00-15:00.
Afgreiðslutími verður aukinn á skrifstofum embættisins sem hér segir:
Hafnarbraut 36, Höfn í Hornafirði:
Annan í hvítasunnu 20. maí: kl. 10:00-12:00.
Vikuna 27.-30. maí: kl. 9:00-16:00.
Föstudaginn 31. maí: kl. 9:00-17:00.
Kjördagur 1. júní: kl. 10:00-12:00. Vaktsími frá kl. 12:00-16:00. Símanúmer: 862 7095.Ránarbraut 1, Vík í Mýrdal:
Annan í hvítasunnu kl. 20. maí: kl. 10:00-12:00.
Vikuna 27.-31. maí: kl. 9:00-16:00.
Kjördagur 1. júní: kl. 10:00 - 12:00. Vaktsími frá kl. 12:00-16:00. Símanúmer 861 1285.Austurvegi 6, Hvolsvelli:
Annan í hvítasunnu 20. maí: kl. 10:00-12:00.
Vikuna 27.-30. maí: kl. 9:00-16:00.
Föstudaginn 31. maí: kl. 9:00-18:00.
Kjördagur 1. júní: kl. 10:00 - 12:00. Vaktsími á kjördag frá kl. 12:00-16:00. Símanúmer: 774 3828.Hörðuvöllum 1, Selfossi:
Laugardaginn 18. maí: kl. 10:00-12:00.
Annan í hvítasunnu 20. maí: kl. 10:00-12:00.
Vikuna 21.-24. maí: kl. 9:00-16:00.
Laugardaginn 25. maí: kl. 10:00-12:00.
Vikuna 27.-30. maí: kl. 9:00-18:00.
Föstudaginn 31. maí: kl. 9:00-20:00.
Kjördagur 1. júní: kl. 10:00-14:00. Vaktsími frá kl. 14:00-16:00. Símanúmer 868-0689.
Hægt er að kjósa utan kjörfundar á eftirtöldum stöðum í umdæminu auk skrifstofa embættisins:
Á skrifstofu sveitarfélagsins Ölfuss, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn.
Opnunartími kl. 09:00 – 12:00 og kl. 13:00-16:00 mánudaga til fimmtudaga. Föstudaga kl. 9:00-13:00.Á skrifstofu Hveragerðisbæjar við Breiðumörk, Hveragerði.
Opnunartími mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00-15:00 og föstudaga kl. 10:00-12:00.Á skrifstofu Hrunamannahrepps, Akurgerði 6, Flúðum.
Opnunartími mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00-15:00, föstudaga kl. 9:00-12:00.Á skrifstofu Bláskógabyggðar 2. hæð í Aratungu, Reykholti.
Opnunartími mánudaga til fimmtudaga kl. 8:30-16:00, föstudaga kl. 8:30-12:30.Á skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi 4, Kirkjubæjarklaustri. Opnunartími mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00-14:00, föstudaga kl. 9:00-12:00.
Á heimili Pálínu Þorsteinsdóttur að Svínafelli 1 Suðurbæ, Öræfum.
Opnunartími eftir samkomulagi. Sími 478 1760 og 894 1765.
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.
Ábyrgð á atkvæði
Athygli er vakin á því að kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði til skila, kjósi hann utan kjörfundar hjá kjörstjóra utan sinnar kjördeildar sbr. 2. mgr. 76. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Fram að kjördegi er kjörstjóra þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í póst og greiða almennt póstburðargjald undir sendinguna. Kjósandi ber að öðru leyti sjálfur kostnað af sendingu atkvæðisbréfsins.
Nægjanlegt er að koma bréfi með utankjörfundaratkvæði í einhverja kjördeild þess kjördæmis þar sem kjósandinn er á kjörskrá.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í heimahúsi
Þeir sem eiga ekki heimangengt að greiða atkvæði á kjörstað á kjördag vegna sjúkdóms eða fötlunar, skulu skila beiðni um að fá að greiða atkvæði í heimahúsi til embættisins, fyrir kl. 10:00, fimmtudaginn 30. maí nk.
Umsóknareyðublað er hægt að fá á skrifstofum embættisins og á vefsíðunni www.kosning.is. Umsóknir óskast sendar á netfangið sudurland@syslumenn.is eða lagðar fram á skrifstofum embættisins.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar, á sjúkrastofnunum og fangelsum í umdæmi sýslumannsins á Suðurlandi, fer fram sem hér segir:
Selfoss og nágrenni:
Fangelsið Sogni, Ölfusi, þriðjudaginn 21. maí kl. 10:00-11:00.
Sólheimar í Grímsnesi, miðvikudaginn 22. maí kl. 13:00-14:00.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Selfossi, sjúkra- og hjúkrunardeildir, þ.m.t. Móberg, föstudaginn 31. maí 10:00-12:00.
Eyrarbakki:
Dvalarheimilið Sólvellir, Eyrarbakka, þriðjudaginn 21. maí kl. 14:00-15:00.
Fangelsið Litla Hrauni, Eyrarbakka, föstudaginn 17. maí kl. 10:00-11:00.
Hveragerði:
Heilsustofnun NLFÍ, fimmtudaginn 23. maí kl. 13:00-14:00.
Ás, dvalar- og hjúkrunarheimili, Hverahlíð 20, föstudaginn 24. maí kl. 09:30-11:30.
Hella:
Lundur, hjúkrunar- og dvalarheimili, þriðjudaginn 21. maí kl. 10:00-11:00.
Hvolsvöllur:
Kirkjuhvoll, hjúkrunar- og dvalarheimili, miðvikudaginn 22. maí kl. 13.00-14:00.
Vík:
Hjallatún, dvalarheimili, miðvikudaginn 22. maí kl. 10.30-11:30.
Kirkjubæjarklaustur:
Klausturhólar, hjúkrunar- og dvalarheimili, miðvikudaginn 22. maí kl. 14.00-15:00.
Höfn:
Skjólgarður, dvalarheimili, þriðjudaginn 28. maí kl. 13:00-14:00.
Atkvæðagreiðslan er einungis ætluð þeim sem dvelja á viðkomandi stofnunum.
Hægt er að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá embætti Sýslumannsins í Vestmannaeyjum á afgreiðslutíma skrifstofunnar, Heiðarvegi 15, sem er sem hér segir:
Mánudaga - fimmtudaga kl. 9:15 - 15:00
Föstudaga: 9:15 - 14:00.
Síðustu viku fyrir kosningar verður afgreiðslutími lengdur sem hér segir:
Mánudag 27. maí - föstudag 31. maí: kl. 9:15 - 17:00
Laugardagur 1. júní, kjördagur: kl. 10:00 - 14:00.
Vaktsími á kjördag frá kl. 14:00 - 16:00. Símanúmer: 896 8713.
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.
Ábyrgð á atkvæði:
Athygli er vakin á því að kjósandi ber sjálfur ábyrgð á að koma atkvæði til skila, kjósi hann utan kjörfundar hjá kjörstjóra utan sinnar kjördeildar sbr. 2. mgr. 76. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Fram að kjördegi er kjörstjóra þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í póst og greiða almennt póstburðargjald undir sendinguna. Kjósandi ber að öðru leyti sjálfur kostnað af sendingu atkvæðisbréfsins.
Nægjanlegt er að koma bréfi með utankjörfundaratkvæði í einhverja kjördeild þess kjördæmis þar sem kjósandinn er á kjörskrá.
Atkvæðagreiðsla í heimahúsi
Ef kjósandi getur ekki kosið á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar er heimilt að kjósa í heimahúsi. Beiðni þess efnis, sem studd skal vottorði lögráða einstaklings um hagi kjósanda, skal berast embættinu fyrir kl. 10:00 fimmtudaginn 30. maí nk. Mælst er til þess að beiðnir þessa efnis berist embættinu án ástæðulauss dráttar. Umsóknareyðublað má nálgast hjá embættinu eða á heimasíðu Landskjörstjórnar, www.kosning.is.
Umsóknir er hægt að senda á vestmannaeyjar@syslumenn.is eða afhenda í afgreiðslu embættisins.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar, á sjúkrastofnunum sýslumannsins í Vestmannaeyjum, fer fram sem hér segir:
Heilbrigðisstofnun Suðurlands, sjúkradeild,
Sólhlíð 10, Vestmannaeyjum
Föstudaginn 31. maí kl. 14:00 -15:00.
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Hraunbúðir,
Dalhrauni 3, Vestmannaeyjum
Fimmtudaginn 30. maí kl. 13:00.
Atkvæðagreiðslan er einungis ætluð þeim sem dvelja á viðkomandi stofnunum.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninga hefst föstudaginn 3. maí á skrifstofu sýslumannsins á Suðurnesjum að Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ.
Unnt er að greiða atkvæði utan kjörfundar á afgreiðslutíma sýsluskrifstofu, sem er alla virka daga frá klukkan 8:30 til 15:00.
Frá og með 10. maí og fram á kjördag verður einnig unnt að kjósa utan kjörfundar til klukkan 19 á virkum dögum og frá klukkan 10 til 14 á laugardögum og annan í hvítasunnu, 20. maí.
Á kjördag, 1. júní, verður opið fyrir kosningu hjá sýslumanni frá klukkan 10 til 14, en einungis fyrir þá sem eiga lögheimili utan umdæmisins og verða viðkomandi sjálfir að koma atkvæði sínu til skila.
Auk þessa verður á síðari stigum unnt að kjósa á sveitarstjórnarskrifstofunum í Vogum og í Garði, Suðurnesjabæ á afgreiðslutíma skrifstofanna og verður það nánar auglýst á heimasíðum sveitarfélaganna.
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki (ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini).
Kjósandi getur sótt um að greiða atkvæði í heimahúsi ef hann getur ekki sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun.
Umsókn þarf að berast kjörstjóra fyrir kl. 10:00 fimmtudaginn 30. maí 2024 vegna forsetakjörs þann 1. júní 2024. Tekið er á móti slíkum umsóknum á kjörstöðum og skrifstofum sýslumanna, þá má einnig senda þær í tölvupósti á netfang viðkomandi sýslumanns.
Hvort sem umsókn berst á pappír eða með tölvupósti þarf hún að vera skrifleg, þ.e. undirritun umsækjanda og votta skulu vera handskrifuð. Sé umsókn send með tölvupósti skal senda afrit af handskrifaðri umsókn með sem viðhengi.
Þeir sem fyrirsjáanlega þurfa að óska eftir að fá að greiða atkvæði í heimahúsi eru hvattir til að skila beiðni inn tímanlega.