Þegar starfsfólk á í hættu, eða kann að eiga í hættu, að verða fyrir álagi vegna tilbúinnar ljósgeislunar við störf sín ber atvinnurekanda að tryggja öryggi og heilsu starfsfólks vegna þeirrar geislunar.
Við gerð áhættumats á vinnustöðum vegna birtustigs þarf að skoða eftirfarandi:
Viðmiðunarmörk í reglugerð.
Sérstaka áhættuhópa.
Víxlverkun ljósgeislunar og efna sem hafa áhrif á ljósnæmi.
Óbein áhrif svo sem tímabundin blinda, sprengingar eða bruni.
Búnað til að draga úr áhrifum eða til að koma í stað hættulegs búnaðar.
Upplýsingar úr heilsufarsskoðunum.
Álag frá fleiri en einum ljósgeislunargjafa.
Flokkun fyrir leysa.
Upplýsingar frá framleiðendum
Varnir gegn álagi vegna tilbúinnar ljósgeislunar á vinnustöðum (reglugerð)
Nánar um hæfilega birtu við mismunandi starfsemi.