Fara beint í efnið

Dvalarleyfi vegna lögmæts og sérstaks tilgangs

Umsókn um dvalarleyfi

Réttindi og skyldur

  • Dvalarleyfi á grundvelli lögmæts og sérstaks tilgangs er að hámarki veitt til eins árs.

  • Dveljist handhafi leyfisins lengur en þrjá mánuði samfellt erlendis getur dvalarleyfið verið fellt niður. Ef handhafi skráir lögheimili sitt úr landi fellur dvalarleyfið sjálfkrafa niður. Þrátt fyrir að dvalarleyfi hafi fallið niður er hægt að sækja um endurnýjun á dvalarleyfi, ef það er gert innan gildistíma fyrra dvalarleyfis og sanngirnisástæður mæla með því.

Réttur til endurnýjunar leyfis

  • Dvalarleyfið má endurnýja haldist aðstæður umsækjanda óbreyttar.

    • Miðað er við að leyfið sé veitt á grundvelli tímabundinna aðstæðna og því er ekki gert ráð fyrir að dvalarleyfi á þessum grunni verði endurnýjað nema í undantekningartilvikum.

Réttur til fjölskyldusameiningar

  • Dvalarleyfið veitir ekki rétt til fjölskyldusameiningar.

Réttur til að vinna

  • Handhafar dvalarleyfis á grundvelli lögmæts og sérstaks tilgangs þurfa að sækja sérstaklega um atvinnuleyfi til að mega stunda vinnu hér á landi, sjá leiðbeiningar í lista yfir fylgigögn.

    • Þeir mega ekki byrja að vinna fyrr en dvalar- og atvinnuleyfi hefur verið veitt.

    • Þeir mega ekki vinna fyrir annan atvinnurekanda en þann sem atvinnuleyfið var veitt til.

Réttur til ótímabundins dvalarleyfis

Umsókn um dvalarleyfi

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun