Fara beint í efnið

Dvalarleyfi vegna lögmæts og sérstaks tilgangs

Umsókn um dvalarleyfi

Skilyrði


Allir umsækjendur um dvalarleyfi þurfa

  • að geta sannað á sér deili með gildu vegabréfi

  • að gefa réttar upplýsingar um tilgang dvalarinnar á Íslandi

  • að uppfylla eftirfarandi grunnskilyrði


Sérstök skilyrði vegna lögmæts og sérstaks tilgangs

  • Þú verður að vera 18 ára eða eldri.

  • Tilgangur dvalar þinnar verður að vera lögmætur og sérstakur. Dæmi um tilvik sem koma til greina sem grundvöllur slíks leyfis samkvæmt reglugerð um útlendinga:

    • Útlendingur sem slasast eða veikist hér á landi og þarf að framlengja dvöl sína þess vegna, ef langtímavegabréfsáritun á ekki við um aðstæður hans

    • Útlendingur sem er aðstandandi þess sem slasast hér á landi eða veikist. Aðstandendur teljast maki, sambúðarmaki og foreldrar

    • Útlendingur sem á von á barni sem verður íslenskur ríkisborgari. Leggja þarf fram staðfestingu á þungun og yfirlýsingu frá föður, ef móðir er útlendingur.

    • Útlendingur sem er aðili dómsmáls fyrir íslenskum dómstólum, sé dvöl hans hér á landi nauðsynleg vegna málsins.

  • Ekki er um tæmandi upptalningu að ræða. Útlendingastofnun metur hvort önnur tilvik teljist bæði lögmæt og sérstök.

Umsókn um dvalarleyfi

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun